Valur og Víkingur Reykjavík gerðu 1-1 jafntefli í Pepsi Max-deild karla í fyrrakvöld. Víkingur skoraði jöfnunarmark í blálokin.
Um var að ræða leik á milli tveggja efstu liða deildarinnar. Hvorugt liðið hefur tapað leik og því var mikið undir.
Kaj Leo í Bartalsstovu kom Val yfir á 56. mínútu leiksins. Þegar allt útlit var fyrir að Valsarar myndu sigla sigrinum heim þá jafnaði Nikolaj Hansen fyrir Víkinga á lokasekúndum leiksins.
Leikurinn var til umræðu í sjónvarpsþættinum 433.is á Hringbraut í gærkvöldi. Þar talaði Benedikt Bóas Hinriksson um það hversu einstakt það er að skora mikilvægt mark í blálok knattspyrnuleiks.
,,Þú þekkir það sjálfur, að skora mark bara tíu sekúndum fyrir leikslok. Þú ert á bleiku skýi bara út vikuna. Þeir reyna að fara fram fyrir röð á hverjum einasta skemmtistað þessir gæjar,“ sagði Benedikt í þættinum.
Þessa umræðu og margt fleira má nálgast í þættinum. Hann má sjá hér fyrir neðan.