Það má segja að það hafi soðið all hressilega upp úr í Mosfellsbænum í gær. Þar mættust Afturelding og Fjölnir í Lengjudeild karla. Elmar Kári kom Aftureldingu yfir eftir aðeins 7 mínútur. Georg Bjarnason tvöfaldaði forystuna á 65. mínútu. Þá vöknuðu Fjölnismenn og minnkaði Valdimar Ingi muninn á 86. mínútu og Jóhann Árni jafnaði nokkrum mínútum síðar og tryggði Fjölni 1 stig úr leiknum.
Mark Jóhanns Árna kom úr mjög umdeildri vítaspyrnu en annan leikinn í röð telja Mosfellingar að brotið sé á sér.
Stuðningsmenn Aftureldingar voru ansi reiðir í leikslok og sungu til dómarans. „Dómarinn fær rothögg,“ sungu stuðningsmenn Afturelding sem eru kallaðir Rothöggið.
Afturelding er í 9. sæti, stigi fyrir ofan Þróttara á meðan Fjölnismenn sitja sáttir í 2. sæti deildarinnar.
Hegðun stuðningsmanna Aftureldingar má sjá hér að neðan en leikurinn verður krufin til mergjar á mánudag, í markaþætti Lengjudeildarinnar á Hringbruat.
„Hiti eftir leik í Mosó. Dómarastéttin ekki vinsæl hjá heimamönnum,“ skrifaði Elvar Geir Magnússon ritsjtóri Fótbolta.net og birti myndbandið hæér að neðan.
Hiti eftir leik í Mosó. Dómarastéttin ekki vinsæl hjá heimamönnum #fotboltinet pic.twitter.com/99LARGycHE
— Elvar Geir Magnússon (@elvargeir) June 3, 2021