Rio Ferdinand fyrrum varnarmaður Manchester United er ósáttur með Kai Rooney son Wayne Rooney og hvaða peysu hann klæddist um helgina.
Kai sem er ungur að árum fór í peysu sem er með merki Manchester City, við það er Rio Ferdinand ekki sáttur enda Manchester United og City algjörir erkifjendur.
Ferdinand og Rooney áttu frábæra tima saman hjá Manchester United en Kai virðist ekki vera hliðhollur félaginu.
„Hvað er hann að gera í þessari peysu???,“ skrifar Ferdinand við Instagram mynd sem birtist af Kai.
Rooney á fjóra syni en þeir eru sagðir nokkuð efnilegir knattspyrnupiltar, Wayne er nú stjóri Derby en félagið rétt bjargaði sér frá falli úr næst efstu deild á síðustu leiktíð.