FH hefur staðfest endurkomu Ólafs Jóhannessonar til félagsins, tekur hann við liðinu af Loga Ólafssyni sem var sagt upp störfum í morgun.
Ólafur lét af störfum sem þjálfari Stjörnunnar síðasta haust en hann hafði starfað hjá félaginu í eitt tímabil. Áður var hann þjálfari Vals þar sem hann fjóra titla á fjórum árum áður en félagið lét hann fara haustið 2019.
Ólafur var fyrst þjálfari FH árið 1988 til ársins 1990, hann tók aftur við þjálfun liðsins árið 1995. Hann kom svo aftur árið 2003 og gerði liðið að Íslandsmeisturum árið 2004, 2005 og 2006, hann lét af störfum árið 2007 og tók við íslenska landsliðinu.
Yfirlýsing FH
Ólafur Jóhannesson tekur við FH-liðinu
Ólafur Jóhannesson sem stýrði FH til fyrsta Íslandsmeistaratitils félagsins, og vann 4 titla með FH liðið frá 2003-2007 tekur við FH ásamt Davíð Þór. Óli tekur við FH í fjórða sinn en hann kvaddi með fyrsta bikarmeistaratitli félagsins árið 2007 til að taka við íslenska landsliðinu.
Mikilvægir leikir eru framundan hjá FH í bikar, deild og Evrópu og hvetjum við stuðningsmenn liðsins að styðja við bakið á FH liðinu á næstu mánuðum.