Ef marka má frétt Manchester Evening News verður Dean Henderson markvörður númer eitt hjá Manchester United á næstu leiktíð.
David de Gea var númer eitt hjá Ole Gunnar Solskjær, stjóra liðsins, lengst af á síðustu leiktíð en Henderson vann sér inn sæti þegar leið á tímabilið. De Gea lék þó úrslitaleik Evrópudeildarinnar gegn Villarreal í maí.
Samkvæmt Manchester Evening News mun Henderson hefja næstu leiktíð sem aðalmarkvörður í ensku úrvalsdeildinni. De Gea mun leika bikarleiki.
Henderson skaust fram á sjónarsviðið er hann lék á láni hjá Sheffield United tímabilið 2019-2020. Í kjölfarið ákvað Man Utd að halda honum hjá sér tímabilið eftir.
De Gea er á ansi veglegum launapakka hjá félaginu. Það er ansi dýrt að hafa svoleiðis leikmann á bekknum.