Thiago Alcantara er ekki hrifinn af þeim stað sem knattspyrnan er á í dag ef marka má orð hans í viðtali við franska blaðið L’Equipe.
Miðjumaðurinn lauk nýverið sínu fyrsta tímabili hjá Liverpool eftir að hafa komið frá Bayern Munchen fyrir leiktíðina.
Hann segir að töfrana vanti í knattspyrnu nútímans.
,,Ég hata nútíma fótbolta. Við sjáum minni töfra. Leikmenn eru fljótari. Það þarf ekki að rekja boltann eins mikið þar sem leikmenn eru sneggri og líkamlega sterkari. Leikmenn ery þróaðri á alla vegu en það vantar þessa leikmenn sem geta látið þig taka andköf,“ sagði Thiago. Nokkuð sérkennileg ummæli svo ekki meira sé sagt.
Thiago er þessa stundina með spænska landsliðshópnum á EM 2020. Liðið hefur leikið einn leik. Þar gerði það jafntefli gegn Svíþjóð.