Ólafur Kristjánsson lofsamaði Kjartan Henry Finnbogason, framherja KR, í nýjasta þætti 433.is á Hringbraut. Hann segir leikmanninn vera einstakan.
Ólafur fékk Kjartan til liðs við sig í vetur er hann stýrði Esbjerg í dönsku B-deildinni. Framherjinn þurfti því miður að glíma við meiðsli fljótlega eftir komu sína. Ólafur gat þó séð, á þeim stutta tíma sem hann vann með honum, hversu frábær karakter Kjartan er.
,,Ég er búinn að reyna að fá hann nokkrum sinnum í þau lið sem ég hef verið með. Það var alveg einstakt, loksins tókst það að fá hann en því miður lendir hann í hnémeiðslum sem að taka hann út. (Hann er) einn af þeim eftirminnilegri að þjálfa, sem karakter og leikmaður, alveg geggjaður í hóp,“ sagði Ólafur um Kjartan.
Hörður Snævar Jónsson, þáttastjórnandi, spurði hann nánar út í það hvað gerði Kjartan svona einstakan.
,,Hann er náttúrulega winner. Bæði á æfingum og í leikjum þá setur hann ákveðinn standard. Hann æfir rosalega vel, hann hugsar vel um sig, hann þorir að segja hluti sem að aðrir kannski veigra sér við að segja og hann getur sagt það af því að hann gengur fyrir framan með fordæmi. Svo er hann líka góður í fótbolta. Því miður kynntist ég honum of seint í fótbolta sem þjálfari. Það hefði verið hrikalega gaman að eiga við hann þegar hann var yngri,“ sagði Ólafur.
Umræðuna um Kjartan sem og þáttinn í heild sinni, þar sem farið var um víðan völl með Ólafi, má sjá hér fyrir neðan.