ÍBV tók á móti Þór á Hásteinsvelli í 6. umferð Lengjudeildar karla í gær. Leiknum lauk með dramatískum 2-1 sigri ÍBV.
Stefán Ingi Sigurðarson, sem kom til ÍBV á láni frá Breiðablik fyrir tímabilið, kom heimamönnum yfir snemma leiks með skalla. Tæpum 20 mínútum síðar jafnaði Jóhann Helgi Hanesson metin og þannig stóðu leikar í hálfleik.
Næst dró til tíðinda á 65. mínútu þegar Nökkvi Már Nökkvason fékk beint rautt spjald fyrir brot.
Guðjón Pétur Lýðsson fékk frábært tækifæri undir lok leiks til að koma heimamönnum aftur yfir þegar hann fékk vítaspyrnu en hann skaut yfir. Þá héldu flestir að leikurinn myndi enda með jafntefli en Guðjón Ernir Hrafnkelsson skoraði í uppbótartíma og tryggði ÍBV þrjú mikilvæg stig.
Allt það helsta úr leiknum er hér að neðan.