Leikmenn ítalska landsliðsins gætu þurft að sækja skyndihjálparnámskeið á Evrópumótinu í knattspyrnu sem nú er í gangi eftir atvikið sem átti sér stað á laugardag.
Þá féll Eriksen niður rétt undir lok fyrri hálfleiks í leik Danmerkur og Finnlands. Nú hefur komið í ljós að leikmaðurinn fór í hjartastopp en snögg viðbrögð leikmanna og starfsmanna á vellinum björguðu lífi hans.
Gabriele Gravina, formaður ítalska knattspyrnusambandsins, ætlar að láta leikmenn ítalska landsliðsins og þá leikmenn sem spila á Ítalíu sitja skyndihjálparnámskeið eftir atvikið.
„Við erum að vinna í að hanna þessi námskeið og munu klúbbarnir taka þau á undirbúningstímabilinu. Ítalska landsliðið verður líklega fyrsta liðið til að taka námskeiðið.“