fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
433Sport

Heilsa Arons Einars verður betri og betri – KSÍ reynir að koma frestuðum leikjum fyrir

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 1. júní 2021 14:52

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aron Einar Gunnarsson fyrirliði Íslands verður klár í slaginn gegn Færeyjum á fimmtudag, hann fór meiddur af velli í tapi gegn Mexíkó á laugardag.

Aron virtist þar meiða sig í rifbeinum og missa andann um stutta stund. „Aron æfði með okkur í dag, nánast alla æfinguna. Hann verður klár í heila æfingu á morgun, þetta lítur mjög vel út,“ sagði Arnar Þór Viðarsson á fréttamannafundi í dag.

Arnar valdi í gær 24 manna hóp fyrir leikina gegn Færeyjum og Póllandi. Fyrir verkefnið átti ekki að taka leikmenn úr deildinni hér heima með en breyting varð á. FJórir af þeim fara í verkefnið. „Mjög líklega verður þetta hópurinn í leikina tvo, það gætu orðið breytingar. Við erum 24 samtals og við vonum bara að allir komi heilir úr Færeyja leiknum. Spurningin er bara að klára öll þau mál er varðar íslensku deildina.“

„Ef það leysist þá býst ég ekki við miklum breytingum. Það gæti verið erfitt að fresta leikjum út af verkefni í Evrópukeppni síðar í sumar. Það er í höndum KSÍ núna.“

Breiðablik, KA, FH og Keflavík eiga fulltrúa í sínu liði en liðin eiga öll að leika á mánudag. Birkir Már Sævarsson fer ekki til Færeyja vegna þess að dagskrá Vals er þétt næstu vikur.

„Dagskrá Vals er stífari en hjá öðrum. Það er ómögulegt að koma öllum þeim leikjum sem búist er við hjá Val, það er helsta ástæðan. Við hefðum viljað hafa markaskorarann hjá okkur,“ sagði Arnar en Birkir skoraði mark Íslands gegn Mexíkó.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Ríkharð segir þetta ástæðu þess að KSÍ hefur ekki ráðið framkvæmarstjóra – „Hún er byrjuð í annarri vinnu og þiggur laun þar“

Ríkharð segir þetta ástæðu þess að KSÍ hefur ekki ráðið framkvæmarstjóra – „Hún er byrjuð í annarri vinnu og þiggur laun þar“
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Högg í maga enskra stórliða

Högg í maga enskra stórliða
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Eftir vonbrigðin í gær telja æðstu menn hjá Arsenal að þetta vanti

Eftir vonbrigðin í gær telja æðstu menn hjá Arsenal að þetta vanti
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

United gæti notað Greenwood upp í kaup á leikmanni Juventus

United gæti notað Greenwood upp í kaup á leikmanni Juventus
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Setur glæsilegt hús sitt á sölu – Vill fá 800 milljónir fyrir það

Setur glæsilegt hús sitt á sölu – Vill fá 800 milljónir fyrir það
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Ivan Toney sagður gera kröfu um að þéna meira en Bruno

Ivan Toney sagður gera kröfu um að þéna meira en Bruno
433Sport
Í gær

Var agndofa þegar Schweinsteiger lýsti framkomu Mourinho hjá United – „Mér var bara sparkað út úr klefanum“

Var agndofa þegar Schweinsteiger lýsti framkomu Mourinho hjá United – „Mér var bara sparkað út úr klefanum“
433Sport
Í gær

Endar Martial hjá liði í London?

Endar Martial hjá liði í London?