Það var stuð og stemming í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í gær þegar Kristján Óli Sigurðsson sérfræðingur þáttarins valdi fimm bestu kantmennina í efstu deild karla á Íslandi. Stjórnandinn og markvörðurinn fyrrverandi, Hjörvar Hafliðason var ekki sammála öllu.
„Pilla á Höskuld Gunnlaugsson kantmann Breiðabliks,“ sagði Hjörvar Hafliðason stjórnandi þáttarins. Hann nefndi einnig Birni Snær Ingason leikmann HK, kaldar kveðjur í Kópavoginn frá Höfðingjanum eins og hann er kallaður.
Listar Kristjáns vekja iðulega athygli og er þessi einn af þeim betri.