fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
433Sport

Leikmenn liða í Ofurdeildinni ræddu sín á milli í dag varðandi viðbrögð – „Fótboltinn þarf á því að halda að þeir láti í sér heyra“

Aron Guðmundsson
Mánudaginn 19. apríl 2021 18:00

GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikmenn þeirra sex liða sem eru skilgreind sem Ofurdeildarlið og spila í ensku úrvalsdeildinni, hafa í dag ráðið ráðum sínum um það hvernig best sé að bregðast við þeim fréttum að lið sín séu þátttakendur í Ofurdeildinni.

Þetta herma heimildir blaðamannsins virta, Henry Winter sem starfar hjá The Times. Liðin sem um ræðir eru Arsenal, Chelsea, Liverpool, Manchester United, Manchester City og Tottenham

„Leikmenn þessara ‘stóru sex’ liða hafa rætt sín á milli hvernig best sé að bregðast við fregnum um Ofurdeildina. Það er erfitt að bíta höndina sem fæðir þig en fótboltinn þarf á því að halda að þeir láti í sér heyra,“ skrifaði Winter í innleggi sem birtist á Twitter í dag.

Ljóst er að mikið er í húfi fyrir leikmennina en forsvarsmenn UEFA og FIFA hafa sagt að þeir leikmenn sem taki þátt í Ofurdeildinni munu ekki verða gjaldgengir á mótum sambandanna, þar með talið Evrópumót og Heimsmeistaramót landsliða.

Fregnir af fyrirhugaðri Ofurdeild hafa heilt yfir lagst illa í stuðningsmenn þeirra liða sem hafa kvittað upp á það að vera hluti af deildinni.

Tilkynnt var um það í gærkvöldi að tólf evrópsk stórlið hefðu samþykkt að vera hluti af Ofurdeildinni.

Stofnfélög deildarinnar eru: Arsenal, Chelsea, Liverpool, Manchester City, Manchester United, Tottenham, Atlético Madrid, Barcelona, Real Madrid, AC Milan, Inter Milan og Juventus.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Ótrúleg myndbönd birtast – Stútuðu knæpu eftir gleðitíðindin og einn girti niðrum sig í miðri ræðu

Ótrúleg myndbönd birtast – Stútuðu knæpu eftir gleðitíðindin og einn girti niðrum sig í miðri ræðu
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum
Leikmenn Arsenal í rusli
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Adam birtir myndir af skónum hans Arons með æluna upp í háls

Adam birtir myndir af skónum hans Arons með æluna upp í háls
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Hörmulegar vítaspyrnur kostuðu City – Real Madrid komið í undanúrslit

Hörmulegar vítaspyrnur kostuðu City – Real Madrid komið í undanúrslit