Mikil reiði er á samfélagsmiðlum og í Bretlandi vegna Ofurdeildarinnar sem sex stærstu félög ensku úrvalsdeildarinnar eru að setja í lotið.
Stuðningsmenn Liverpool eru reiðir út í eigendur félagsins og eru byrjaðir að mótmæla fyrir utan Anfied. Búið er að hengja upp borða fyrir utan völl félagsins.
„Stuðningsmenn Liverpool eru á móti Ofurdeildinni,“ stendur á borðanum fyrir utan Anfield.
— The Redmen TV (@TheRedmenTV) April 19, 2021
12 evrópsk stórlið á knattspyrnusviðinu tilkynntu seint í gærkvöldi að þau hafi tekið saman höndum um stofnun Ofurdeildar, The Super League. UEFA er alfarið á móti þessu og hótaði í gær að útiloka liðin og leikmenn þeirra frá þátttöku í öllum mótum á alþjóðasviðinu. Þá hafa knattspyrnusamböndin í Englandi, Spáni og á Ítalíu hótað að reka liðin úr deildarkeppnunum þar í landi. Markmiðið með deildinni er að til verði keppni þar sem 15 lið eiga alltaf fast sæti en árlega fái 5 önnur lið aðgang að keppninni.
Liðunum verður skipt í tvo 10 liða riðla þar sem liðin leika heima og að heiman gegn hvert öðru. Leikið verður í miðri viku og ætla liðin að vera áfram með í deildarkeppnunum í heimalöndum sínum. Þrjú efstu liðin úr hvorum riðli fara síðan beint áfram í átta liða úrslit þar sem leikið verður heima og að heiman með útsláttarfyrirkomulagi. Liðin í fjórða og fimmta sæti riðlanna leika um lausu sætin tvö í átta liða úrslitunum. Þau tvö lið sem komast í úrslitin leika síðan einn leik til úrslita um sigur í deildinni
Stofnfélög deildarinnar eru:
Arsenal
Chelsea
Liverpool
Manchester City
Manchester United
Tottenham
Atlético Madrid
Barcelona
Real Madrid
AC Milan
Inter Milan
Juventus.