fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
433Sport

Hansi Flick staðfestir að hann vilji hætta með Bayern Munchen

Helga Jónsdóttir
Laugardaginn 17. apríl 2021 17:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hansi Flick hefur ákveðið að yfirgefa Þýskalands- og Evrópumeistara Bayern Munchen eftir tímabilið. Flick hefur unnið allt sem hægt er að vinna með Bayern Munchen eftir að hann tók við liðinu í nóvember 2019.

Flick tilkynnti þetta eftir leik Wolfsburg og Bayern Munchen sem Bayern unnu 2-3.

„Ég sagði liðinu í dag að ég hefði tilkynnt stjórn klúbbsins þetta í vikunni eftir leikinn í París um að ég vildi yfirgefa félagið í lok leiktíðar,“ sagði Flick við Sky í Þýskalandi.

„Mér fannst mikilvægt að liðið heyrði þetta frá mér. Ég er mjög þakklátur að hafa fengið að vera hjá þessu liði.“

Bayern hafa verið orðaðir við bæði Nagelsmann og Jurgen Klopp en ljóst er að erfitt verður fyrir liðið að landa þeim.

Líklegasti áfangastaður Hansi Flick er þýska landsliðið. Talið er líklegt að hann taki við því eftir EM í sumar en Joachim Löw mun láta af störfum eftir það mót.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Nú líklegast að hann fari til Spánar

Nú líklegast að hann fari til Spánar
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Antony rýfur loks þögnina og útskýrir það sem hann gerði

Antony rýfur loks þögnina og útskýrir það sem hann gerði
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Selfoss lánar Gary Martin til Ólafsvíkur

Selfoss lánar Gary Martin til Ólafsvíkur
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Leikmaður í ensku úrvalsdeildinni skýtur fast á Antony

Leikmaður í ensku úrvalsdeildinni skýtur fast á Antony
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Hlakkar til að fylgjast með uppgangi John – „Það er ekkert skemmtilegra“

Hlakkar til að fylgjast með uppgangi John – „Það er ekkert skemmtilegra“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Katrín myndi vilja bjóða Jurgen Klopp á Bessastaði – „Hann er miklu meiri stemningsmaður en ykkar maður“

Katrín myndi vilja bjóða Jurgen Klopp á Bessastaði – „Hann er miklu meiri stemningsmaður en ykkar maður“