fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
433Sport

Telur að tap Bayern í kvöld marki upphafið af endalokum Hansi Flick með liðið – Gæti stýrt þýska landsliðinu gegn Íslandi í Reykjavík

Aron Guðmundsson
Þriðjudaginn 13. apríl 2021 21:40

GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Evrópumeistarar Bayern Munchen, eru úr leik í Meistaradeild Evrópu eftir tap á útivallarmörkum gegn Paris Saint-Germain í 8-liða úrslitum keppninnar. Einvígi liðanna endaði með 3-3 jafntefli en PSG skoraði fleiri útivallarmörk.

Mikið hefur verið rætt og ritað um framtíð knattspyrnustjórans Hansi Flick, sem stýrði Bayern Munchen til sigurs í keppninni í fyrra. Hann hefur verið orðaður við þjálfarastarfið hjá þýska landsliðinu en Joachim Löw, núverandi landsliðsþjálfari, hættir með liðið eftir Evrópumótið í sumar.

Raphael Honigstein, sérfræðingur um þýska boltann hjá BBC, telur að tapið í kvöld geri það að verkum að líklegra sé nú en áður að Hansi Flick verði næsti landsliðsþjálfari Þýskalands, sem er einmitt með Íslandi í riðli í undankeppni HM.

„Sigur í kvöld hefði styrkt stöðu hans hjá félaginu en nú þegar þeir eru dottnir úr leik í Meistaradeild Evrópu tel ég það líklegar að hann muni yfirgefa félagið og taka við þýska landsliðinu,“ skrifar Honigstein á vefsíðu BBC.

Hann segir pressu á forráðamönnum Bayern að greiða fljótt úr þessari óvissu er snýr að knattspyrnustjórastöðu félagsins. Yfirgefi Hansi Flick, Bayern Munchen, er talið að Julian Nagelsmann, knattspyrnustjóri RB Leipzig, sé líklegastur til þess að taka við knattspyrnustjórastöðunni hjá Bayern.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Setur glæsilegt hús sitt á sölu – Vill fá 800 milljónir fyrir það

Setur glæsilegt hús sitt á sölu – Vill fá 800 milljónir fyrir það
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Ivan Toney sagður gera kröfu um að þéna meira en Bruno

Ivan Toney sagður gera kröfu um að þéna meira en Bruno
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Var agndofa þegar Schweinsteiger lýsti framkomu Mourinho hjá United – „Mér var bara sparkað út úr klefanum“

Var agndofa þegar Schweinsteiger lýsti framkomu Mourinho hjá United – „Mér var bara sparkað út úr klefanum“
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Endar Martial hjá liði í London?

Endar Martial hjá liði í London?
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Ótrúleg myndbönd birtast – Stútuðu knæpu eftir gleðitíðindin og einn girti niðrum sig í miðri ræðu

Ótrúleg myndbönd birtast – Stútuðu knæpu eftir gleðitíðindin og einn girti niðrum sig í miðri ræðu
433Sport
Í gær

Leikmenn Arsenal í rusli

Leikmenn Arsenal í rusli