fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
433Sport

Ráðleggur Solskjær hvernig nota skal Shaw á næstu vikum

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 8. mars 2021 11:05

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester City tók á móti grönnum sínum í Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í gær. Leikurinn endaði með 2-0 sigri Manchester United en leikið var á heimavelli City, Etihad Stadium. Manchester City hafði fyrir leikinn í dag unnið 21 leik í röð og freistaði þess að halda sigurgöngunni gangandi.

Strax á 2. mínútu leiksins fékk Manchester United vítaspyrnu. Bruno Fernandes tók spyrnuna og kom gestunum yfir. Þannig stóðu leikar allt þar til á 50. mínútu þegar að Luke Shaw tvöfaldaði forystu Manchester United með marki eftir stoðsendingu frá Marcusi Rashford.

Gary Neville segir að Shaw sé besti vinstri bakvörður deildarinnar um þessar mundir en óttast að hann meiðist fari Ole Gunnar Solskjær ekki varlega með hann á næstunni.

„Hann hefur verið magnaður á þessu tímabili, hann hefur verið heill heilsu, í góðu líkamlegu formi og með sjálfstraust. Hann er besti vinstri bakvörður Englands í dag,“ sagði Neville eftir leikinn.

„Að allir þessir hlutir séu í lagi á sama tíma hefur líklega ekki gerst á ferli Shaw. Það hefur verið vandamál en hann hefur verið frábær núna.“

Neville hefur áhyggjur af því að Shaw meiðist fari Solskjær ekki varlega með hann. „Við höfum séð það á síðustu vikum að hann fer niður í leikjum, hann virðist vera að ganga á þolmörk líkamans. Það veldur mér smá áhyggjum, það er mikilvægt fyrir Ole Gunnar Solskjær að stýra álaginu á honum næstu vikurnar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Hartman í Val
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum
Hartman í Val
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Hetja Bayern sökuð um að gera grín að haltrandi leikmanni Arsenal

Hetja Bayern sökuð um að gera grín að haltrandi leikmanni Arsenal
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ríkharð segir þetta ástæðu þess að KSÍ hefur ekki ráðið framkvæmarstjóra – „Hún er byrjuð í annarri vinnu og þiggur laun þar“

Ríkharð segir þetta ástæðu þess að KSÍ hefur ekki ráðið framkvæmarstjóra – „Hún er byrjuð í annarri vinnu og þiggur laun þar“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Norski áhrifavaldurinn nú komin með athyglisverðan titil – Sjáðu nýjustu myndir hennar

Norski áhrifavaldurinn nú komin með athyglisverðan titil – Sjáðu nýjustu myndir hennar
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Eftir vonbrigðin í gær hefur Pep ákveðið hvert aðalskotmark sitt í sumar verður

Eftir vonbrigðin í gær hefur Pep ákveðið hvert aðalskotmark sitt í sumar verður
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Upptaka af lýsandanum fer eins og eldur í sinu – Hlustaðu á hvað hann gerði í beinni

Upptaka af lýsandanum fer eins og eldur í sinu – Hlustaðu á hvað hann gerði í beinni
433Sport
Í gær

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona
433Sport
Í gær

Tveir leikmenn báðu um að taka ekki vítaspyrnu í gær

Tveir leikmenn báðu um að taka ekki vítaspyrnu í gær