fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
433Sport

Tölfræðin um hörmungar Liverpool – Verri árangur en Moyes náði hjá United

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 5. mars 2021 09:32

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Liverpool tók á móti Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í gær. Leikurinn endaði með 1-0 sigri Chelsea en leikið var á Anfield. Eina mark leiksins kom á 42. mínútu, það skoraði Mason Mount eftir stoðsendingu frá N’Golo Kanté. 1-0 sigur Chelsea staðreynd og um leið mikilvæg þrjú stig í pokann. Chelsea situr í 6. sæti deildarinnar með 44 stig.

Englandsmeistarar Liverpool sitja í 7. sæti með 43 stig og ljóst að félagið er í miklum vandræðum.

Liverpool hefur nú tapað fimm leikjum á heimavelli í röð í deildinni, er það í fyrsta sinn í sögu félagsins. Þeir eru fyrstu Englandsmeistarar sögunnar sem tapa fimm heimaleikjum í röð.

Titilvörn Liverpool hefur verið vægast sagt slæm, liðið er með 43 stig eftir 27 leiki. Það er verri árangur en David Moyes náði með Manchester United í titilvörn félagsins árið 2013/2014. United hafði þá 45 stig eftir 27 leiki. Liverpool hefur fengið tíu stig í ellefu leikjum árið 2021, aðeins West Brom, Newcastle og Southampton hafa fengið færri stig.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Eftir vonbrigðin í gær hefur Pep ákveðið hvert aðalskotmark sitt í sumar verður

Eftir vonbrigðin í gær hefur Pep ákveðið hvert aðalskotmark sitt í sumar verður
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Upptaka af lýsandanum fer eins og eldur í sinu – Hlustaðu á hvað hann gerði í beinni

Upptaka af lýsandanum fer eins og eldur í sinu – Hlustaðu á hvað hann gerði í beinni
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Tveir leikmenn báðu um að taka ekki vítaspyrnu í gær

Tveir leikmenn báðu um að taka ekki vítaspyrnu í gær
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Öll stærstu lið Englands vilja sækja þennan bita frá Úkraínu í sumar

Öll stærstu lið Englands vilja sækja þennan bita frá Úkraínu í sumar
433Sport
Í gær

Netverjar hafa tekið eftir atviki sem sást ekki í sjónvarpi – Hafði líklega mikil áhrif á úrslit gærkvöldsins

Netverjar hafa tekið eftir atviki sem sást ekki í sjónvarpi – Hafði líklega mikil áhrif á úrslit gærkvöldsins
433Sport
Í gær

Ronaldo vinnur skaðabótamál gegn Juventus – Fær 1,5 milljarð plús vexti

Ronaldo vinnur skaðabótamál gegn Juventus – Fær 1,5 milljarð plús vexti
433Sport
Í gær

Adam birtir myndir af skónum hans Arons með æluna upp í háls

Adam birtir myndir af skónum hans Arons með æluna upp í háls