Guðni Bergsson formaður KSí sendir sneið á fjölmiðla og segir að þeir séu mögulega á rangri leið í umfjöllun um fótbolta. Guðni heldur þessu fram í viðtali við Morgunblaðið.
Guðni ræðir þar stöðu íslenska landsliðsins undir stjórn Arnars Þórs Viðarssonar en gustað hefur um liðið síðustu daga. Eftir tap gegn Armeníu á sunnudag steig Guðjón Þórðarson fram og hélt því fram að Gylfi Þór Sigurðsson væri ósáttur með Eið Smára Guðjohnsen, aðstoðarþjálfara.
Gylfi steig svo fram í gær og sagði Guðjón fara fram með algjör ósannindi. „Varðandi þessi ummæli Guðjóns Þórðarsonar um ósætti Eiðs og Gylfa þá dæma þau sig í raun bara sjálf en þetta er aðeins í takt við þá umræðu sem hefur verið í gangi. Það er eins með fjölmiðla sem taka þetta upp en svona eru fjölmiðlar bara í dag,“ segir Guðni við Morgunblaðið og virðist efins um það hvort fjölmiðlar eigi að vitna til þegar fyrrum landsliðsþjálfari talar.
Meira
Gylfi Þór segir Guðjón fara fram með rakalausa lygi – „Maður varla nennir að svara fyrir þetta“
„Menn henda fram sögum eða vangaveltum sem þeir heyra og það er allt í einu orðið að fyrirsögnum. Ég er ekki viss um að það sé góð þróun en á sama tíma er þetta bara eitthvað sem menn þurfa að takast á við í dag eins og annað sem menn þurfa að takast á við í fótboltanum,“ segir Guðni við Morgunblaðið.
Guðni segir það ekki sitt að dæma um hvort fjölmiðlar séu á rangri leið en hefur þetta að segja. „Það er ekki mitt að dæma um það en ég held óneitanlega að þessi hlaðvarpsumræða hafi breytt landslaginu mikið. Þetta eru vinsælir þættir sem maður skilur enda fótboltinn mjög vinsæll. Maður spyr sig hins vegar hvort einhverjar sögusagnir eigi fullt erindi á vefmiðla í dag en þetta er bara eitthvað sem við þurfum að eiga við og er hluti af þessu fjölmiðlaumhverfi í dag. Maður vonar samt sem áður að miðlarnir sýni ábyrgð eins og allir þegar kemur að því að birta fréttir úr hlaðvörpum en þetta virðist alla vega vera þróunin í dag.“