Crystal Palace tók á móti Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Leikurinn fór fram á Selhurst Park og endaði með markalausu jafntefli.
Það eru vondar fréttir fyrir Manchester United sem má ekki við því að tapa stigum ætli liðið sér að veita nágrönnum sínum í Manchester City samkeppni um Englandsmeistaratitilinn.
Liðið er sem stendur í 2. sæti deildarinnar með 51 stig, fjórtán stigum á eftir Manchester City sem virðist ekki geta tapað knattspyrnuleik um þessar mundir.
Fyrr í kvöld hafði Leicester City, sem situr í 3. sæti deildarinnar, gert 1-1 jafntefli við Burnley á útivelli.
Crystal Palace 0 – 0 Manchester United