Eyjamenn hafa verið virkir á félagsskiptamarkaðnum undir stjórn Hermanns Hreiðarsson. Félagið er búið að næla í Alex Frey Hilmarsson og framherjinn Andri Rúnar Bjarnason er svo gott sem orðinn leikmaður ÍBV.
Háværar sögur þess efnis að Haukur Páll Sigurðsson, leikmaður Vals, muni ganga til liðs við ÍBV, hafa verið á kreiki undanfarið og ljóst er að um mikla styrkingju væri að ræða fyrir Eyjamenn sem eru komnir aftur upp í efstu deild.
,,Maður er að heyra að hann sé opinn fyrir því, þetta yrði gríðarleg styrking fyrir Eyjamenn, “ sagði Albert Brynjar Ingason, einn af sérfræðingum Dr. Football um möguleg félagsskipti Hauks Páls til ÍBV.
Ef maður hugsar um það hvernig mögulegt samstarf Hermanns Hreiðarssonar og Hauks Páls verður þá væri hægt að bera það saman við egg og beikon eða malt og appelsín,“ sagði Hrafnkell Freyr, annar af sérfræðingum Dr. Football.
Valsmenn hafa verið að losa um leikmenn í leikmannahóp sínum. Meðal stórra nafna sem hafa yfirgefið félagið má nefna Hannes Þór Halldórsson og Kristinn Frey Sigurðsson sem gekk til liðs við FH.
,,Það er kannski bara kominn tími á breytingu hjá Hauki Pál, tækifæri fyrir hann til þess að endurstilla ferilinn hjá sér. Þetta yrði samt skellur fyrir Val, sérstaklega innan liðsins sem er þá að missa fyrirliðann sinn,“ sagði Albert Brynjar Ingason í hlaðvarpsþættinum Dr. Football.
Haukur Páll á að baki 247 leiki í efstu deild og hefur í þeim leikjum skorað 34 mörk, þá á hann einnig að baki tvo A-landsleiki fyrir Íslands hönd.