Haukur Páll Sigurðsson, leikmaður Vals, fékk rautt spjald í æfingaleik gegn ÍA uppi á Akranesi í gær fyrir ljótt brot.
Þegar á gulu spjaldi fór Haukur Páll í glæfralega tæklingu á Guðmundi Tyrfinssyni, leikmanni ÍA. Hér fyrir neðan má sjá helstu atriðin úr leiknum. Tæklingin sjálf er sýnd eftir um 50 sekúndur af myndbandinu.
Það helsta úr æfingaleik ÍA gegn Valsmönnum sem fram fór í gær #fotboltinet pic.twitter.com/42OTMuhktH
— ÍATV (@ia_sjonvarp) December 5, 2021
Leik ÍA og Vals lauk með 4-2 sigri heimamanna.