RB Leipzig hefur rekið Bandaríkjamanninn Jesse Marsch úr stöðu knattspyrnustjóra.
Marsch tók við Leipzig í sumar af Julian Nagelsmann. Hlutirnir hafa þó ekki gengið eins og vonast var eftir.
Leipzig er aðeins í ellefta sæti þýsku Bundesligunnar. Þá er Leipzig aðeins með 4 stig eftir fimm leiki í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Liðið á ekki möguleika á að komast áfram í 16-liða úrslit.
#RBLeipzig and head coach Jesse #Marsch have mutually agreed to part ways. Jesse Marsch has been released from his contract with immediate effect.
⚪🔴 #WeAreLeipzig pic.twitter.com/JQYkaCUJam
— RB Leipzig English (@RBLeipzig_EN) December 5, 2021