Þrír leikir fóru fram í 8-liða úrslitum danska bikarsins í dag. Íslendingalið voru á ferðinni í öllum leikjum. Í 8-liða úrslitunum er leikið heima og að heiman. Þetta voru fyrri leikir liðanna.
Elías Rafn Ólafsson var áfram á varamannabekk Midtjylland í 0-2 sigri á Bröndby. Hann var fyrr á tímabilinu orðinn fyrsti kostur í markinu hjá liðinu en Jonas Lössl hefur spilað síðustu leiki.
Seinni leikur liðanna fer fram eftir viku.
Kristófer Ingi Kristinsson lék allan leikinn með Sonderjyske í 1-0 sigri á Hvidovre.
Seinni leikur liðanna fer fram á föstudag.
Þá lék Aron Elís Þrándarson allan leikinn með OB í 0-2 sigri á Randers.
Seinni leikur liðanna fer fram eftir viku.