Lögreglan í Paragvæ gómaði stóra sendingu af kókaíni á dögunum en um var að ræða 200 kíló sem lögreglan handsmamaði.
Það sem gerir málið furðulegra er að stór hluti af pökkunum var með merki Liverpool.
Efnin voru handsömuð við landamæri Paragvæ og hefur þetta vakið mikla athygli.
Over 200 kilos of Liverpool FC branded cocaine seized in Paraguayan border town Pedro Juan Caballero.
You’ll never snort alone? pic.twitter.com/xslvzO1Xaw
— Ralph Hannah (@paraguayralph) November 26, 2021
Ekki voru allir pakkarnir með merki Liverpool á sér en óvíst er hvað glæpagenginu gekk til sem merkti pakkana.