Þremur leikjum er nýlokið í ensku úrvalsdeildinni.
Manchester City 2-1 West Ham
Manchester City tók á móti West Ham og tók öll þrjú stigin.
Man City var miklu betri aðilinn í fyrri hálfleik og tók forystuna verðskuldað eftir rúman hálftíma leik. Þá skoraði Ilkay Gundogan.
Heimamenn voru einnig betri í seinni hálfleik. Annað mark þeirra kom þó ekki fyrr en á 90. mínútu. Þá skoraði Fernandinho.
Manuel Lanzini minnkaði muninn fyrir West Ham seint í uppbótartíma en nær komust gestirnir ekki.
Brentford 1-0 Everton
Brentford vann frækinn sigur á Everton á heimavelli.
Ivan Toney kom þeim yfir með marki af vítapunktinum á 24. mínútu.
Everton leitaði að jöfnunarmarki í seinni hálfleik en náði ekki að skapa sér nógu góð færi. Lokatölur 1-0.
Leicester 4-2 Watford
Leicester tók á móti Watford og vann sigur í markaleik.
James Maddison kom Leicester yfir eftir rúman stundarfjórðung. Joshua King jafnaði fyrir nýliðanna á 30. mínútu.
Maddison lagði svo upp tvö mörk fyrir Jamie Vardy á síðustu tíu mínútum fyrri hálfleiks. Staðan í hálfleik var 3-1 fyrir heimamenn.
Emmanuel Dennis minnkaði muninn fyrir Watford á 61. mínútu. Um sjö mínútum síðar innsliglaði Ademola Lookman þó 4-2 sigur Leicester.