Atalanta heimsótti Juventus í ítölsku Serie A í kvöld og vann góðan sigur.
Eina mark leiksins skoraði Duvan Zapata á 28. mínútu. Lokatölur 0-1.
Eftir slakt gengi hafði Juve unnið tvo deildarleiki í röð þegar kom að leik kvöldsins. Þeim hefur þó verið kippt niður á jörðina aftur. Þetta stórveldi er í áttunda sæti deildarinnar, 7 stigum frá Atalanta sem er í fjórða sæti, Meistaradeildarsæti.
Þá er Juve 11 stigum á eftir toppliði Napoli, sem einnig á leik til góða.