fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
433Sport

Enska úrvalsdeildin: Nokkuð þægilegt fyrir Arsenal – Hörmungar Newcastle halda áfram

Helgi Sigurðsson
Laugardaginn 27. nóvember 2021 14:26

Gabriel Martinelli og Pierre-Emerick Aubameyang fagna marki þess fyrrnefnda. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arsenal vann nokkuð þægilegan sigur á Newcastle í fyrsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Leikið var á Emirates-vellinum.

Heimamenn stýrðu ferðinni í fyrri hálfleik. Pierre Emerick Aubameyang fékk langbesta tækifærið til að koma þeim yfir seint í hálfleiknum. Hann setti boltann hins vegar í stöngina á ótrúlegan hátt þegar það virtist afar einfalt að skora.

Skömmu áður hafði Jojo Shelvey þó verið nálægt því að koma Newcastle yfir. Aaron Ramsdale varði skot hans hins vegar frábærlega. Markalaust var í hálfleik.

Arsenal var miklu betri aðilinn í seinni hálfleik og komst yfir á 56. mínútu. Þá skoraði Bukayo Saka eftir góða sókn.

Tíu mínútum síðar tvöfaldaði Gabriel Martinelli svo forystu Arsenal með frábærri afgreiðslu eftir flotta sendingu frá Takehiro Tomiyasu. Martinelli var nýkominn inn á sem varamaður.

Newcastle ógnaði lítið í seinni hálfleik og var sigur Arsenal ekki í hættu. Lokatölur 2-0. Arsenal er í fimmta sæti deildarinnar með 23 stig. Newcastle er á botninum með 6 stig.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Nú líklegast að hann fari til Spánar

Nú líklegast að hann fari til Spánar
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Antony rýfur loks þögnina og útskýrir það sem hann gerði

Antony rýfur loks þögnina og útskýrir það sem hann gerði
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Selfoss lánar Gary Martin til Ólafsvíkur

Selfoss lánar Gary Martin til Ólafsvíkur
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Leikmaður í ensku úrvalsdeildinni skýtur fast á Antony

Leikmaður í ensku úrvalsdeildinni skýtur fast á Antony
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Hlakkar til að fylgjast með uppgangi John – „Það er ekkert skemmtilegra“

Hlakkar til að fylgjast með uppgangi John – „Það er ekkert skemmtilegra“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Katrín myndi vilja bjóða Jurgen Klopp á Bessastaði – „Hann er miklu meiri stemningsmaður en ykkar maður“

Katrín myndi vilja bjóða Jurgen Klopp á Bessastaði – „Hann er miklu meiri stemningsmaður en ykkar maður“