Antonio Conte stjóri Tottenham er þekktur fyrir það að fara fljótt í fýlu ef hlutirnir eru ekki að ganga upp. Eftir tap gegn Murca í Sambandsdeildinni í gær er komið slæmt hljóð í stjóran.
Nú segja ensk blöð frá því að Conte vilji kaupa Eric Bailly varnarmann Manchester United strax í janúar.
Conte hefur verið stjóri Tottenahm í rúmar þrjár vikur. „Ég verð að vera heiðarlegur, ég er byrjaður að skilja öll þessi vandamál eftir þennan tíma. Þetta er ekki einföld staða,“ sagði Conte.
Ljóst má vera að hann vill styrkja liðið sitt í janúar enda telur hann liðið ekki nógu gott. „Þetta er ekki einfalt því gæðin hjá Tottenham eru ekkert sérstaklega mikil“
Bailly er varaskeifa hjá United og er í raun og veru fjórði kostur félagsins í hjarta varnarinnar á eftir Harry Maguire, Victor Lindelöf og Raphael Varane.