Ole Gunnar Solskjær þarf ekki að hafa áhyggjur af peningum á næstunni eftir að hafa misst starf sitt hjá Manchester United í gær.
Solskjær hafði skrifað undir nýjan samning við félagið í sumar en síðan hallaði undan fæti.
Solskjær fær 7,5 miljónir punda í sinn vasa fyrir brottreksturinn um er að ræða tæpan 1,4 milljarð íslenskra króna.
Líklegt er að Solskjær flytji heim til Noregs þar sem hann mun njóta lífsins með fjölskyldu sinni eftir erfiða tíma.
Í heimabæ hans Kristansund verður tekið vel á móti Solskjær en búið er að tendra upp ljós í heimabæ hans.
Ole's hometown, Kristiansund, pays tribute to him 🇳🇴❤️ pic.twitter.com/6QhGxTPWNA
— United Zone (@ManUnitedZone_) November 22, 2021