Tómas Leó Ásgeirsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Grindavík.
Tómas er framherji sem hefur leikið með Haukum undanfarin tvö tímabil í 2. deild. Hann skoraði 31 mark í 45 leikjum fyrir Hauka.
Leikmaðurinn er uppalinn hjá Sindra á Hornafirði.
Tómas mun að einhverju leyti þurfa að fylla í skarðið sem Sigurður Bjartur Hallsson skildi eftir sig þegar hann fór frá Grindavík í KR á dögunum.
Sigurður skoraði 17 mörk í Lengjudeildinni á síðustu leiktíð.
Tómas Leó skrifar undir hjá Grindavík ⚽️
Tómas Leó Ásgeirsson hefur skrifað undir 3⃣ja ára samning við Grindavík. Spennandi sóknarmaður sem á framtíðina fyrir sér.
Nánar: https://t.co/hdCJIaAMKK
Áfram Grindavík!
💛💙 #ViðErumGrindavík pic.twitter.com/23gwRWHkct— UMFG – Ungmennafélag Grindavíkur (@umfg) November 2, 2021