fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
433Sport

Arnar ætlar að funda með Jóhanni í rólegheitum

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 5. október 2021 15:41

Mynd/Helgi Viðar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arnar Þór Viðarsson ætlar að ræða við Jóhann Berg Guðmundsson kantmann Burnley í rólegheitum. Jóhann er ekki í komandi verkefni landsliðsins vegna meiðsla.

Jóhann sagði í viðtali við okkur í gær að hann væri þó ekki sáttur með vinnubrögð KSÍ undanfarið. Mikil ólga hefur verið innan KSÍ undanfarnar vikur. Fyrrum stjórn hafði afskipti af vali á leikmönnum og svo virðist sem núverandi formaður ætli að vera á sömu línu. „Ég get alveg viðurkennt að það hafði áhrif á ákvörðun mína í þetta sinn að ég hef ekki verið fyllilega sáttur við vinnubrögð sambandsins undanfarin misseri,“ sagði Jóhann um stöðu mála.

Arnar var spurður út í þessa ákvörðun Jóhanns. „Við að sjálfsögðu reyndum að sannfæra Jóa, hann var fyrirliði liðsins í síðasta glugga. Þetta hefur verið erfitt fyrir Jóhann út af meiðslunum, eftir leik helgarinnar þar sem hann byrjaði á bekknum . Hann fékk í nárann, hann sagðist ekki vera 100 prósent,“ sagði Arnar.

Hann ætlar að ræða við Jóhann í rólegheitum um það hvað hann er ósáttur við. „Síðan er tilkynning um KSÍ sem við höfum ekkert rætt við Jóa, við munum gera það í rólegheitum,“ sagði Arnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Búið að ganga frá launapakkanum sem Þorvaldur fær í Laugardalnum – Þetta þénaði Vanda í starfinu

Búið að ganga frá launapakkanum sem Þorvaldur fær í Laugardalnum – Þetta þénaði Vanda í starfinu
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Arsenal tók Chelsea og slátraði þeim – Tylltu sér á toppinn

Arsenal tók Chelsea og slátraði þeim – Tylltu sér á toppinn
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Selfoss borgar stóran hluta af myndarlegum launapakka Gary Martin

Selfoss borgar stóran hluta af myndarlegum launapakka Gary Martin
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Arsenal og City gætu verið á leið í stríð um miðjumanninn öfluga

Arsenal og City gætu verið á leið í stríð um miðjumanninn öfluga
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Bjóða honum nýjan samning þó sá gamli gildi í sex ár til viðbótar

Bjóða honum nýjan samning þó sá gamli gildi í sex ár til viðbótar
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Villa staðfestir gleðitíðindin

Villa staðfestir gleðitíðindin