fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
433Sport

Þorvaldur hættir sem þjálfari Stjörnunnar en færir sig í nýtt starf hjá félaginu

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 4. október 2021 13:09

Þorvaldur Örlygsson tekur slaginn við Guðna.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorvaldur Örlygsson hefur verið ráðinn í starf rekstrarstjóra knattspyrnudeildar Stjörnunnar sem auglýst var á dögunum.

Þorvaldur lætur því af störfum sem þjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu en hann kom til félagsins síðastliðið haust og stýrði liðinu í sumar eftir að Rúnar Páll Sigmundsson sagði upp starfi sínu.

Stjörnunni gekk ekki vel í efstu deild karla en lykilmenn voru mikið fjarverandi vegna meiðsla.

„Ég hef notið tímans vel og þó svo að tímabilið hafi gengið upp og ofan þá er Stjarnan öflugt félag með ótrúlega sterkan kjarna starfsmanna og sjálfboðaliða sem hafa búið til umgjörð í kringum fótboltann í Garðabæ sem er eftirsóknarvert umhverfi að starfa í. Það kemur oft best í ljós þegar menn lenda í brekku úr hverju þeir eru gerðir og það var algerlega til fyrirmyndar hvernig félagið hélt á sínum málum núna í sumar og ég veit að sú stefna sem er til staðar er líkleg til afreka enda efniviðurinn nægur og kjarni liðsins öflugur,“ segir Þorvaldur.

„Ég er mjög spenntur fyrir nýju hlutverki mínu innan félagsins og einstaklega ánægjulegt að hafa orðið fyrir valinu í þetta starf. Ég sé mikil tækifæri innan Stjörnunnar til framtíðar bæði með tilkomu nýs knatthúss í Vetrarmýrinni. Eins þá er félagið með gríðarlega öflugt og barna- og unglingastarf og meistaraflokkur kvenna verið í sterkri uppbyggingu sem verður gaman að koma að. Það er von mín að þekking mín og reynsla geti nýst í nýju starfi til að að styrkja ennfrekar það góða starf sem á sér stað innan félagsins. Ég veit að það voru margir sem sóttust eftir starfinu þegar það var auglýst og virkilega ánægjulegt að hafa staðið uppi sem sá valkostur sem Stjarnan taldi henta sér best eftir að hafa farið í gegnum stíft ráðningaferli sem ráðningarstofan Intellectra hélt utan um. Ég vill nota tækifærið og þakka fyrir tímann sem ég átti með meistaraflokki karla og mun nú einhenda mér í það verkefni að styðja við liðið frá annarri átt“ segir Þorvaldur Örlygsson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Leikmaður United ákærður fyrir tvö brot – Mætti fyrir dómara í dag en neitar sök

Leikmaður United ákærður fyrir tvö brot – Mætti fyrir dómara í dag en neitar sök
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Pétur Theódór snýr aftur heim til Gróttu eftir erfið meiðsli

Pétur Theódór snýr aftur heim til Gróttu eftir erfið meiðsli
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Carlo Ancelotti brast í grát þegar þetta var að gerast

Carlo Ancelotti brast í grát þegar þetta var að gerast
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Nagelsmann hafnar Bayern og heldur áfram í sama starfi

Nagelsmann hafnar Bayern og heldur áfram í sama starfi
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Norski áhrifavaldurinn nú komin með athyglisverðan titil – Sjáðu nýjustu myndir hennar

Norski áhrifavaldurinn nú komin með athyglisverðan titil – Sjáðu nýjustu myndir hennar