Það eru kannski ekki ýkja mörg ár í það að stuðningsmenn Manchester United fari aftur að syngja um Rooney. Einn dáðasti sonur félagsinsa Wayne Rooney gerði það gott í mörg ár hjá félaginu.
Nú er Kai Rooney í herbúðum félagsins en drengurinn er þó aðeins 11 ára gamall. Drengurinn reimaði á sig markaskóna þegar United og Liverpool mættust um helgina.
Um var að ræða leik milli U12 ára liða félaganna, Liverpool vann 5-4 sigur á United. Kai labbaði hins vegar sáttur frá borði enda skoraði hann öll fjögur mörk United.
Kai er stuðningsmaður Everton og Manchester United sem eru erkifjendur Liverpool, sökum þess var guttinn sáttur þrátt fyrir tap.
Hann birti mynd á samfélagsmiðlum þar sem hann segir frá mörkunum sínum. Wayne Rooney faðir hans er í dag stjóri Derby.