Búið er að draga í riðla fyrir Evrópumótið í knattspyrnu sem fer fram á Englandi næsta sumar en dregið var í Manchester á Englandi núna rétt í þessu. Ísland er í riðli með Frakklandi, Ítalíu og Belgíu.
Þetta er í fjórða skiptið í röð sem Ísland tekur þátt á Evrópumóti kvenna. Ísland komst í fyrsta skipti í sögunni í lokakeppni Evrópumótsins árið 2009.
Besti árangur Íslands á Evrópumóti er 8-liða úrslit og verður gaman að sjá hversu langt við komumst í ár.
Ljóst er að þjóðin mun standa þétt við bakið á stelpunum okkar og flykkjast til Englands næsta sumar, að er án efa hægt að lofa mikilli skemmtun.
Leikdagar Íslands:
10. júlí 2022: Belgía vs Ísland, Manchester City Academy Stadium í Manchester
14. júlí 2022: Ítalía vs Ísland, New York Stadium, Rotherham
18. júlí 2022: Ísland vs Frakkland, New York Stadium, Rotherham
Aðrir riðlar:
A-riðill:
England
Austurríki
Noregur
Norður-Írland
B-riðill:
Þýskaland
Danmörk
Spánn
Finnland
C-riðill:
Holland
Svíþjóð
Rússland
Sviss
D-riðill:
Frakkland
Ítalía
Belgía
Ísland