Heimildarmaður The Sun, segir að leikmenn innan leikmannahóps Manchester United, telji að Ole Gunnar Solskjær, knattspyrnustjóri Manchester United, fái tvo leiki til þess að bjarga starfi sínu.
,,Sumir leikmenn Manchester United telja að Solskjær fái tvo leiki í viðtbót og ef liðinu mistakist að vinna báða leikina gæti hann verið á förum,“ segir heimildarmaðurinn í samtali við The Sun.
Leikirnir tveir sem eru framundan eru gríðarlega mikilvægir fyrir Manchester United. Sá fyrri er í kvöld gegn ítalska liðinu Atalanta í Meistaradeild Evrópu. Manchester United er með þrjú stig eftir tvo leiki í riðli sínum í Meistaradeildinni og þarf nauðsynlega á sigri að halda í kvöld.
Á sunnudaginn bíður síðan stórleikur gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni. United situr í 6. sæti deildarinnar með 14 stig eftir 6 leiki, fimm stigum á eftir toppliði Chelsea.