Jón Dagur Þorsteinsson var í byrjunarliði AGF sem tók á móti Álaborg í dönsku úrvalsdeild karla í fótbolta í kvöld.
Jóni Degi tókst að næla sér í gult spjald eftir aðeins fjögurra mínútna leik og þurfti því að halda sig á mottunni það sem eftir lifði leiks. Frederik Brandhof kom AGF í forystu á sjöttu mínútu uppbótartíma fyrri hálfleiks eftir stoðsendingu frá Patrik Mortensen og reyndist það eina mark leiksins.
Jón Dagur var tekinn af velli þegar að tíu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma og Frederik Tingager kom inn á í hans stað.
AGF er nú í 7. sæti með 15 stig eftir 12 leiki. Álaborg er í 3. sæti með 21 stig.