Athugasemdir Ole Gunnars Solskjær, knattspyrnustjóra Manchester United í garð Marcusar Rashford, eftir 4-2 tap liðsins gegn Leicester City í ensku úrvalsdeildinni um helgina, hafa fallið í grýttan jarðveg hjá fólki sem hefur unnið náið með Rashford í gegnum tíðina.
Rashford sneri aftur í leikmannahóp Manchester United um helgina eftir erfið axlarmeiðsli. Leikmaðurinn kom inn á í seinni hálfleik og tókst meðal annars að skora seinna mark liðsins í tapinu.
Manchester United á erfitt leikjaprógram framundan þar sem meðal annars Liverpool, Tottenham, Manchster City, Chelsea og Arsenal. Solskjær vill að Rashford, sem hefur verið ötull baráttumaður fyrir yngri kynslóðina í Bretlandi og vakið athygli á fátækt og hungursneyð, einbeiti sér að knattspyrnuiðkun næstu vikurnar. Rashford hefur fengið fjölda viðurkenninga fyrir sín störf.
Heimildir The Athletic herma að athugasemdir Solskjær hafi fallið í grýttan jarðveg hjá fólki sem er vel tengt Rashford. Fulltrúar Manchester United vilja meina að orð Solskjærs hafi verið mistúlkuð.
,,Þið vitið hvað hann hefur gert utan vallar, hann hefur gert frábæra hluti. En nú er kannski kominn tími til fyrir hann að setja knattspyrnuna í forgang og einbeita sér að henni,“ sagði Solskjær við fjölmiðla.
Rashford hefur áður þurft að sitja undir slíkri gagnrýni sem er á þá leið að hann eigi að einbeita sér meira að knattspyrnuiðkun. Hann hefur sjálfur fordæmt slíka gagnrýni og hefur áður sagt að það liggi enginn vafi á því að hann leggi sig allan fram fyrir sitt félag.
Rashford á að baki 272 leiki fyrir Manchester United, í þeim leikjum hefur hann skorað 89 mörk og gefið 56 stoðsendingar.