ÍA og Víkingur Reykjavík, mætast í bikarúrslitum karla á laugardaginn. Leikið verður á Laugardalsvelli og hefjast leikar klukkan 15:00.
ÍA bjargaði sér á ævintýralegan hátt í Pepsi-Max deildinni og liðið hefur verið á miklu skriði í síðustu leikjum. Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, segir þetta efla sjálfstraustið hjá liðinu.
,,Þetta var gríðarlega mikilvægur endasprettur fyrir okkur í deildinni. Að taka þessa þrjá leiki og fylgja því síðan eftir með að vinna Keflavík tvo leiki í röð bæði í deild og bikar. Varnarleikurinn er að lagast hjá okkur og er orðinn nokkuð öflugur. Það er mikill stígandi í liðinu og hægt og bítandi kemur meira sjállfstraust. Við komum í góðu formi inn í þennan bikarúrslitaleik.“
Jóhannes segir það hafa verið markmið hjá liðinu að komast í bikarúrslit og að æfingaplani hafi verið hagað eftir því vikurnar fyrir úrslitaleikinn.
,,Við vissum fyrirfram að við myndum fara alla leið í bikarúrslit, það var það sem við ætluðum okkur og við höguðum okkar æfingaplani eftir því. Mesta kúnstin í þessu öllu saman hefur verið að halda mönnum ferskum í höfðinu. Við höfum reynt að létta prógrammið en það hefur verið góður taktur í þessu hjá okkur þessa vikuna.“
Skaginn er sögufrægt félag í íslenskri knattspyrnu og hefur unnið til fjölda titla en langt er síðan að liðið vann sinn síðasta stóra titil. Jóhannes segist finna fyrir aukinni spennu í samfélaginu á Akranesi.
,,Við höfum fundið stuðninginn í samfélaginu upp á Skaga vaxa, þessi gulrót er risastór. Það að vera komnir í bikarúrslit er ristastórt og jákvætt, við ætlum ekki að láta staðar numið þar heldur ætlum við okkur að vinna bikarinn og með því kemur sæti í Evrópukeppni sem væri risastórt fyrir okkur sem félag.“
Jóhannes er þó meðvitaður um að sagan muni ekki hjálpa ÍA neitt á laugardaginn.
,,Það er langt síðan að það kom síðast titill upp á Skaga en við getum breytt því á laugardaginn. Saga félagsins er frábær, við höfum unnið bikarmeistaratitilinn níu sinnum og það væri frábært að gera það í tíunda skipti á laugardaginn. Sagan mun þó ekki hjálpa okkur á laugardaginn. Við erum að fara mæta Íslandsmeisturunum sem eru með frábært lið og Arnar Gunnlaugsson sem þjálfara. Þetta verður verðugt verkefni en í einum svona leik þá höfum við trú á því að við getum unnið Víkingana. Við teljum okkur geta fundið veikleika í leik þeirra sem gefur okkur færi á að vinna leikinn á laugardaginn,“ segir Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA í samtali við 433.is.