Breski vefmiðilinn Talksport birtir í dag grein á vefsíðu sinni um ótrúlega sögu Guðjohnsen fjölskyldunnar sem hefur farið eins og eldur um sinu í knattspyrnuheiminum eftir að bræðurnir Sveinn Aron og Andri Lucas Gudjohnsen spiluðu saman í 4-0 sigri á Liechtenstein á dögunum. Samvinna þeirra skilaði sér meðal annars í fjórða marki Íslands í leiknum.
,,Segið nafnið Guðjohnsen við hvern sem er á Íslandi og viðkomandi er vís til þess að svara með víkingaklappi,“ skrifar Oliver Dawnay, blaðamaður Talksport.
Saga Guðjohnsen fjölskyldunnar er rakin 25 ár aftur í tímann þegar að Íslenska karlalandsliðið átti leik við Eistland í Tallinn. Þá spilaði hinn 17 ára gamli Eiður Smári Guðjohnsen, sínar fyrstu mínútur með A-landsliðinu er hann kom inn á sem varamaður fyrir föður sinn, Arnór Guðjohnsen, sem var á þessum tíma 34 ára gamall.
Feðgarnir hefðu viljað fá tækifæri til þess að spila saman landsleik en varð ekki að ósk sinni í leiknum. Seinna meir átti Eiður Smári eftir að meiðast illa sem gerði það að verkum að draumur feðganna um að spila saman með landsliðinu varð ekki að veruleika. Arnór lagði knattspyrnuskóna á hilluna en Eiður Smári hélt áfram með sinn feril.
Logi Ólafsson, var á þessum tíma landsliðsþjálfari Íslenska karlalandsliðsins og hann segist hafa það á samviskunni að feðgarnir hafi aldrei náð að spila saman landsleik.
,,Við vildum að fyrsti landsleikur þeirra saman yrði á Íslandi,“ sagði Logi Ólafsson í þættinum Sportið í kvöld sem var sýndur á Stöð 2 sport árið 2020 og hér má sjá atvikið fræga.
Arnór Guðjohnsen segir það hafa verið ótrúlegt að vera í sama liði og sonur sinn. ,,Það var sérstakt að horfa yfir búningsklefann og sjá sinn eigin son þar. Ég reyndi að vera góð fyrirmynd þegar að hann var að alast upp og ég fylltist stolti þegar að ég sá hann í búningsklefanum með mér,“ sagði Arnór í viðtali árið 2018.
Bæði Arnór og Eiður Smári gerðu vel á sínum knattspyrnuferli bæði með landsliðinu og sem atvinnumenn út í heimi. Arnór vann meðal annars belgísku deildina í þrígang og Eiður Smári vann ensku úrvalsdeildina í tvígang með Chelsea og Meistaradeild Evrópu, spænsku deildina og spænska bikarinn með Barcelona.
Nú eru synir Eiðs Smára, barnabörn Arnórs, farnir að láta til sín taka á knattspyrnuvellinum. Farnir að vera regluleg nöfn í A-landsliðshópnum og faðir þeirra er núverandi aðstoðarlandsliðsþjálfari.
,,Ef þeir komast nálægt því að afreka það sem faðir þeirra og afi gerðu, munu þeir einnig vinna sér inn goðsagnartitil á Íslandi,“ segir í grein sem birtist á Talksport um Guðjohnsen fjölskylduna.
Hér má lesa umfjöllun 433.is um syni Eiðs Smára Guðjohnsen.