Georgina Rodriguez unnusta Cristiano Ronaldo varð orðlaus þegar kappinn mætti heim með nýja gjöf handa henni í vikunni.
Ronaldo splæsti í skartgripaskrín af dýrustu gerð. Um er að ræða skartgripaskrín frá Louis Vuitton sem er aðeins fyrir þá sterk efnuðu.
Gripurinn kostar litlar 18 milljónar króna. Slíkur peningur er bara klink í augum Ronaldo sem er metinn á fleiri milljarða.
Ronaldo og Georgina fluttu til Manchester í sumar. Hún getur nú raðað skargripum sínum í rétta röð í skrínið góða.
Georgina er 27 ára gömul og er níu árum yngri en Ronaldo, saman eiga þau eitt barn.