fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
433

Alltaf snýr Janko aftur

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 15. október 2021 14:47

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Knattspyrnudeild Grindavíkur hefur samið við hinn þrautreynda þjálfara Milan Stefán Jankovic og verður hann aðstoðarþjálfari hjá karlaliði Grindavíkur. Verður hann aðstoðarmaður Alfreðs Elíasar Jóhannssonar sem var kynntur sem þjálfari Grindavíkur fyrir skömmu.

Það þarf vart að kynna Janko fyrir Grindavíkingum en hann hefur búið í bænum í þrjá áratugi og er samofinn sögu knattspyrnudeildar Grindavíkur.

Hann kemur nú inn í nýtt hlutverk hjá Knattspyrnudeild Grindavíkur og verður aðstoðarþjálfari hjá meistaraflokki karla ásamt því að sinna afreksþjálfun hjá félaginu. Janko var síðast aðstoðarþjálfari hjá Grindavík þegar Óli Stefán Flóventsson stýrði liðinu á árunum 2016-2018.

„Knattspyrnudeild Grindavíkur bindur miklar vonir við störf Janko með meistaraflokki félagsins. Hann býr yfir mikilli reynslu og hefur náð mögnuðum árangri í starfi sínu sem þjálfari hjá Grindavík. Alfreð Elías gæti ekki fengið betri aðstoðarmann með sér í það verkefni sem er fyrir höndum,“ segir á vef Grindavíkur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Sjáðu stórkostlegt tilþrif Mbappe í gær

Sjáðu stórkostlegt tilþrif Mbappe í gær
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Guardiola: ,,Þurfum að skoða það í lok tímabils“

Guardiola: ,,Þurfum að skoða það í lok tímabils“
433
Fyrir 18 klukkutímum

Mjólkurbikar karla: Dramatískur sigur Stjörnunnar á Augnabliki

Mjólkurbikar karla: Dramatískur sigur Stjörnunnar á Augnabliki
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Gylfi brattur eftir sigur á uppeldisfélaginu – „Auðvelt að setja það til hliðar“

Gylfi brattur eftir sigur á uppeldisfélaginu – „Auðvelt að setja það til hliðar“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Xavi fundaði með Barcelona í dag

Xavi fundaði með Barcelona í dag
433Sport
Í gær

KSÍ segir samtalið um Laugardalsvöll jákvætt

KSÍ segir samtalið um Laugardalsvöll jákvætt