fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
433Sport

Er Guðlaugur Victor hættur í landsliðinu? – Hjörvar segir mál hans eiga sér eðlilega skýringu

Aron Guðmundsson
Mánudaginn 11. október 2021 13:01

Guðlaugur Victor í leik með íslenska landsliðinu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það vakti upp mikla undrun þegar að tilkynnt var um það að miðjumaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson, hefði dregið sig út landsliðshópnum fyrir leikinn gegn Liechtenstein í undankeppni HM 2022 sem fram fer í kvöld.

Rætt var um málið í hlaðvarpsþættinum Dr.Football í dag og Hjörvar Hafliðason, umsjónarmaður þáttarins telur þetta mál eiga sér eðlilega skýringu.

„Ég veit að hann (Guðlaugur Victor) er búinn að vera í smá meiðslavandræðum á hné og hásin og missti úr síðustu leikjum hjá Schalke,“ sagði Hjörvar í hlaðvarpsþættinum Dr.Football.

Schalke á leik í þýsku 1. deildinni á föstudaginn gegn Hannover og það eflaust leikurinn sem Guðlaugur Victor er með í huga.

„Eðlilega er maður sem er ekki búinn að spila neitt ekki að fara spila föstudag, mánudag, föstudag. Hann verður bara að láta þá sem borga launin ganga fyrir væntanlega. Hann þarf ekkert að taka þátt í einhverjum ‘mikka mús’ leik á móti Liechtenstein. Við erum alltaf að fara vinna Liechtenstein,“ sagði Hjörvar í Dr. Football.

Albert Brynjar Ingason sem var gestur í þætti Hjörvars sagðist hafa heyrt af því að Guðlaugur væri hættur að leika með landsliðinu. Sú saga hefur heyrst ítrekað eftir að Guðlaugur yfirgaf landsliðið í gær.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Spáin fyrir Bestu deild kvenna – „Ég myndi segja að það sé eina sjokkið“

Spáin fyrir Bestu deild kvenna – „Ég myndi segja að það sé eina sjokkið“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Tveir leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni á blaði hjá Arsenal

Tveir leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni á blaði hjá Arsenal
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Segja Zidane nálægt því að taka að sér óvænt starf

Segja Zidane nálægt því að taka að sér óvænt starf
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Besta deild kvenna fer af stað með látum á sunnudag

Besta deild kvenna fer af stað með látum á sunnudag
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Pétur Theódór snýr aftur heim til Gróttu eftir erfið meiðsli

Pétur Theódór snýr aftur heim til Gróttu eftir erfið meiðsli
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Lögreglan hefur heimsótt heimili hans fjórum sinnum á þremur dögum – „Velkomin til Norður-Kóreu“

Lögreglan hefur heimsótt heimili hans fjórum sinnum á þremur dögum – „Velkomin til Norður-Kóreu“
433Sport
Í gær

Nagelsmann hafnar Bayern og heldur áfram í sama starfi

Nagelsmann hafnar Bayern og heldur áfram í sama starfi
433Sport
Í gær

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið