Knattspyrnusamband Íslands ætlar að bjóða 16 ára og yngri ókeypis aðgang á leik Íslands og Liechtenstein, sem fram fer á Laugardalsvelli annað kvöld klukkan 18:45. Um er að ræða leik í undankeppni HM 2022.
Þetta er gert í kjölfar þess að aðeins 1697 áhorfendur mættu á leik Íslands og Armeníu á föstudag.
KSÍ tekur fram á heimasíðu sinni að þeir sem eru 16 ára og yngri og ætla að mæta á völlinn annað kvöld þurfi þó að ná sér í miða á Tix.is, þó ókeypis sé.
Neikvæð umræða hefur verið í kringum karlalandslið Íslands undanfarnar vikur. Þá hefur gengið innan vallar ekki verið gott. Ísland er aðeins með 5 stig í undanriðli sínum eftir sjö leiki. Eini sigurleikurinn hingað til kom einmitt gegn Liechtenstein ytra.
Allt spilar þetta án efa inn í dræma mætingu áhorfenda.