fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
433Sport

Chelsea horfir fyrst og síðast til Þýskalands – Þrjú nöfn á blaði

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 20. janúar 2021 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það eru taldar meiri líkur á því að Chelsea reki Frank Lampard úr starfi frekar en að Newcastle láti Steve Bruce fara.

Chelsea hefur gengið illa undanfarnar vikur og er staða Lampard sögð í hættu, þessi goðsögn hjá Chelsea er á sínu öðru ári í starfi.

Roman Abramovich lét Lampard fá 200 milljónir punda í leikmannakaup í sumar en árangurinn fylgir ekki með, eigandi Chelsea er ekki þekktur fyrir mikla þolinmæði gagnvart stjórum sínum.

Chelsea tapaði 2-0 gegn Leicester á útivelli í gær, Chelsea byrjaði tímabilið vel en það hefur hallað hressilega undan fæti.

Samkvæmt The Athletic eru Chelsea byrjaðir að skoða arftaka Þýskalands og eru sagði horfa til Þýskalands.

Thomas Tuchel fyrrum þjálfari PSG er sagður á blaði hjá Chelsea og sömu sögu má segja um Julien Nagelsmann þjálfara RB Leipzig.

Þá er Ralf Rangnick fyrrum þjálfari Leipzig einnig sagður á blaði Chelsea. Með því að ráða inn þýskan þjálfara þá telur Chelsea sig geta náð því besta fram úr Timo Werner og Kai Havertz.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Algjör U-beygja hjá Xavi

Algjör U-beygja hjá Xavi
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Úr dönsku úrvalsdeildinni í Vestra

Úr dönsku úrvalsdeildinni í Vestra
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

KFA staðfestir komur Þórðar Ingasonar

KFA staðfestir komur Þórðar Ingasonar
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Beitir Ólafsson úr KR í HK

Beitir Ólafsson úr KR í HK
433Sport
Í gær

Eyðir hverri einustu mynd eftir að hafa verið fitusmánuð fyrir framan alþjóð – Unnusti hennar er heimsfrægur

Eyðir hverri einustu mynd eftir að hafa verið fitusmánuð fyrir framan alþjóð – Unnusti hennar er heimsfrægur
433Sport
Í gær

Setja vermiða á stjórann sem Liverpool vill fá – Mjög vegleg upphæð

Setja vermiða á stjórann sem Liverpool vill fá – Mjög vegleg upphæð