Wolves tók á móti West Bromwich Albion í 19. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Leikurinn endaði með 3-2 sigri West Brom. Leikið var á Molineux, heimavelli Wolves.
West Brom komst yfir í leiknum með marki úr vítaspyrnu á 8. mínútu. Það var Matheus Pereira sem skoraði markið.
Þannig stóðu leikar allt þar til á 38. mínútu þegar að Fabio Silva jafnaði metin fyrir heimamenn í Wolves.
Á 43. mínútu kom Willy Boly, Wolves yfir og stóðu leikar í hálfleik því 2-1 fyrir heimamenn.
Leikmenn West Brom mættu ákveðnir til seinni hálfleiks. Á 52. mínútu, jafnaði Semi Ajayi metin fyrir liðið með marki eftir stoðsendingu frá Kyle Bartley.
Það var síðan Matheus Pereira sem tryggði West Brom 3-2 sigur með marki úr vítaspyrnu á 56. mínútu.
Þetta er fyrsti sigur West Brom undir stjórn knattspyrnustjórans Sam Allardyce. Liðið er eftir leikinn í 19. sæti deildarinnar með 11 stig.
Wolves situr í 14. sæti með 22 stig og hefur ekki unnið leik í deildinni síðan 15. desember.
Wolves 2 – 3 West Brom
0-1 Matheus Pereira (‘8, víti)
1-1 Fabio Silva (’38)
2-1 Willy Boly (’43)
2-2 Semi Ajayi (’52)
2-3 Matheus Pereira (’56, víti)