Virgil Van Dijk varnarmaður Liverpool meiddist illa á hné í viðureign Liverpool gegn Everton í október en aðdáendur Liverpool geta farið að kæta sig þar sem styttist í endurkomu kappans.
Liverpoolfcnews.net greinir frá því að leikmaðurinn snúi aftur í lok febrúar eða byrjun mars en í fyrstu var ekki búist við að leikmaðurinn myndi spila aftur á tímabilinu en var svo endurkomu hans svo flýtt til 17. apríl en Transfermarkt greindi frá því og nú virðist vera en styttra í endurkomu en nokkurn tímann var búist við.
Liverpool mætir Manchester United í toppbaráttuslag næstu helgi og getur Manchester komist upp fyrir Liverpool með sigri.
Virgil van Dijk injury: Liverpool star tipped to return in 'February or March' https://t.co/H4IASnuCHf
— FBI Trader Media (@MediaFbi) January 10, 2021