fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
433Sport

Oliver Heiðarsson að semja við FH

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 1. janúar 2021 13:15

Mynd/Þróttur

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Oliver Heiðarsson 19 ára framherji er á barmi þess að semja við FH samkvæmt heimildum 433.is.

Þessi 19 ára sóknarmaður vakti talsverða athygli fyrir framgöngu sína með Þrótti í sumar, liðið var á barmi þess að falla úr Lengjudeildinni þegar mótið var flautað af vegna kórónuveirunnar.

Oliver skoraði fjögur mörk í 19 leikjum með Þrótti í sumar en um var að ræða hans fyrsta heila tímabil í meistaraflokki.

Oliver rifti samningi sínum við Þrótt á dögunum en samkvæmt heimildum hefur talsverður fjöldi liða reynt að semja við framherjann síðustu daga og vikur. Hann ákvað að semja við FH og verður gengið frá málunum á næstu dögum.

Oliver ólst upp á Englandi en hann á ekki langt að sækja hæfileikana, faðir hans er Heiðar Helguson. Heiðar átti afar farsælan feril á Englandi og með íslenska landsliðinu. Líkt og Oliver þá lék Heiðar með Þrótti á sínum yngri árum.

Logi Ólafsson tók við sem þjálfari FH á dögunum eftir að Eiður Smári Guðjohnsen lét af störfum til að taka við sem aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Nóg að gera í Hafnarfirði – Skiptast á leikmönnum við Val fyrir stórleikinn og selja Harald aftur til Fram

Nóg að gera í Hafnarfirði – Skiptast á leikmönnum við Val fyrir stórleikinn og selja Harald aftur til Fram
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Úr dönsku úrvalsdeildinni í Vestra

Úr dönsku úrvalsdeildinni í Vestra
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Leggur til að United ráði Roy Keane til starfa í sumar

Leggur til að United ráði Roy Keane til starfa í sumar
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Breytingar á leikstöðum í Bestu deildinni – FH spilar heimaleik á Ásvöllum

Breytingar á leikstöðum í Bestu deildinni – FH spilar heimaleik á Ásvöllum
433Sport
Í gær

Eiginkonan umdeilda tjáði sig í gærkvöldi – Hefur áður kallað eftir brottrekstri

Eiginkonan umdeilda tjáði sig í gærkvöldi – Hefur áður kallað eftir brottrekstri
433Sport
Í gær

Skilaboð unga drengsins segir allt um hörmungarnar í vetur

Skilaboð unga drengsins segir allt um hörmungarnar í vetur