Arnar Sveinn Geirsson, formaður leikmannasamtaka Íslands, hefur tjáð sig um þann orðróm að reynsluboltar íslenska karlalandsliðsins gætu hætt að gefa kost á sér í landsliðið, skipti stjórn KSÍ sér frekar af vali á landsliðshópum.
Það hefur gustað vel um Knattspyrnusamband Íslands og karlalandsliðið vegna meintra kynferðisbrota leikmanna og þöggun sambandsins á þeim. Svo fór að stjórn KSÍ sagði af sér á dögunum. Eins og kunnugt er var Kolbeinn Sigþórsson valinn í landsliðshópinn fyrir síðasta leikjaglugga þar sem leikið var við Rúmeníu, Norður-Makedóníu og Þýskaland. Stjórn KSÍ bannaði honum hins vegar að taka þátt í leikjunum eftir að fjölmiðlar fóru að fjalla um meint ofbeldisbrot hans gegn tveimur stúlkum á skemmtistað í Reykjavík fyrir fjórum árum.
Fyrr í vikunni fjallaði Morgunblaðið um óánægju landsliðsmanna með ákvörðun stjórnar og að einhverjir leikmenn gætu hætt að gefa kost á sér í landsliðið, verði þetta raunin áfram.
,,Þú verður þreyttur á því þegar umræðan er svona, alveg óháð þessum málum. Umræða um það að þeir séu að hætta af því einhver er ekki valinn, miklu frekar er rosalega lýjandi að sitja undir einhverju þegar þú telur þig ekki hafa gert neitt og það eru allir settir undir sama hatt,“ sagði Arnar Sveinn í hlaðvarpsþættinum Dr. Football.
Arnar segist skilja leikmenn vel ef þeir ákveða að halda ekki áfram með landsliðinu, umræðan undanfarið snerti fleiri en þá.
,,Umræðan er rosalega skrýtin, hvað það er bara hallað á eina átt. Ég skil bara mjög vel að menn nenni ekki að vera að eyða tíma sínum í þetta. Þetta snertir ekkert bara þá, fjölskyldumeðlimir finna alveg fyrir svona umræðu.“