Aston Villa ætlar að samþykkja 100 milljóna punda tilboð Manchester City í stjörnuleikmann sinn, Jack Grealish. Sky Sports greinir frá þessu.
Það kom fram í gær að 100 milljóna tilboð væri á borði Villa. Það hefur ekki verið formlega samþykkt. Það verður þó að öllum líkindum niðurstaðan.
Það er undir hinum 25 ára gamla Grealish komið hvort hann vilji fara til Englandsmeistaranna eður ei.
Hjá Villa hafa menn staðið fastir á því að halda honum hjá félaginu í sumar. Það kom til að mynda fram á dögunum að hann fengi boð um nýjan ofursamning hjá félaginu til að fæla Man City frá. Nú virðist hins vegar vera að Villa hafi sætt sig við stöðuna.
Ef skiptin ganga í gegn verður leikmaðurinn sá dýrasti í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Paul Pogba er sá dýrasti sem stendur. Manchester United keypti hann frá Juventus á 89 milljónir punda árið 2016.