Real Madrid er að bjóða framherjanum Karim Benzema eins árs framlengingu á samningi sínum. Marca greinir frá.
Núgildandi samningur hans rennur út eftir aðeins eitt ár. Nú mun hann hins vegar verða samningbundinn til ársins 2023.
Hinn 33 ára gamli Benzema hefur verið í herbúðum Real frá árinu 2009. Hann hefur skorað 279 mörk í 559 leikjum fyrir félagið.
Real hafnaði í öðru sæti spænsku La Liga á síðustu leiktíð.